Heilsuefling eldri borgara – aftur af stað

 Þær Ingi­björg Ólöf Isak­sen formaður starfshóps um lífskjör og aðbúnað aldraða og Þór­unn Sveinbjörns­dótt­ir formaður Landssambands eldri borgara hvetja til heilsueflingar eldra fólks.Á dögunum var veittur ríflegur styrkur frá félagsmálaráðuneytinu til ÍSÍ og LEB til að efla heilsueflingu eldra fólks, sem var m.a. afrakstur starfshópsins sem þær sátu báðar í.

Eldri borg­ar­ar hafa marg­ir hverj­ir þurft að þola skerta sam­veru og fé­lags­lega ein­angr­un vegna Covid-19-far­ald­urs­ins. Það hef­ur meðal ann­ars haft þau áhrif að marg­ir hafa ekki haft tök á að stunda reglu­bundna hreyf­ingu líkt og áður. Með hækk­andi sól og fleiri bólu­sett­um lands­mönn­um horf­um við sem bet­ur fer fram á bjart­ari tíma. Því er afar mik­il­vægt að virkja þenn­an ald­urs­hóp aft­ur til hreyf­ing­ar, því fyrr, því betra.Öll erum við meðvituð um já­kvæð áhrif skipu­lagðrar hreyf­ing­ar. Þau sem ná eft­ir­launa­aldri í dag eru mun lík­legri til að njóta fleiri ára með góða hreyfigetu en sam­bæri­leg­ur ein­stak­ling­ur gerði ein­ung­is fyr­ir nokkr­um ára­tug­um. Þessi staða býður upp á nýj­ar áskor­an­ir en einnig upp á tæki­færi sem við þurf­um að nýta okk­ur til fulls. All­ar nýj­ar rann­sókn­ir sýna okk­ur að hreyf­ing og styrkt­arþjálf­un ásamt hollu mataræði get­ur bætt lífs­gæði og seinkað öldrun allt upp í 5 ár eða meira.Eldri borg­ar­ar eru breiður hóp­ur fólks með ólík­ar þarf­ir og mark­miðið er að all­ir geti búið sem lengst heima við ör­yggi og verið sjálf­stæðir í lífi og starfi. Síðustu ár hafa orðið nýj­ar áhersl­ur sem taka mið af áskor­un­um eldra fólks og auðvelda því að halda áfram virkri þátt­töku í sam­fé­lag­inu. Þar má t.d. benda á heilsu­efl­andi sam­fé­lög sem er heild­ræn nálg­un sem embætti land­lækn­is vinn­ur að í sam­starfi og sam­ráði við sveit­ar­fé­lög, op­in­ber­ar stofn­an­ir, frjáls fé­laga­sam­tök o.fl. þar sem mark­visst er unnið að því að skapa um­hverfi og aðstæður sem stuðla að heil­brigðum lifnaðar­hátt­um, heilsu og vellíðan íbúa.Fé­lags- og barna­málaráðherra gerði ný­verið samn­inga við Lands­sam­band eldri borg­ara og Íþrótta- og ólymp­íu­sam­band Íslands um að aðstoða áhuga­söm sveit­ar­fé­lög um land allt við að inn­leiða með mark­viss­um hætti heilsu­efl­ingu til framtíðar sem fel­ur í sér skipu­lagða þjálf­un og aukið heilsu­læsi aldraðra m.t.t. hreyf­ing­ar, nær­ing­ar og annarra þátta sem skipta sköp­um fyr­ir heilsu þeirra og líðan. Lögð verði áhersla á nám­skeið, fræðslu og ann­an fag­leg­an stuðning til þjálf­ara eft­ir því sem við á, og annarra sem koma að heilsu­efl­ingu aldraðra á hverj­um stað. Áhersla verði lögð á sam­starf hlutaðeig­andi aðila á hverj­um stað, s.s. fé­lög eldri borg­ara, íþrótta­fé­lög og lík­ams­rækt­ar­stöðvar. Mark­miðið er að auka lífs­gæði aldraðra með betri lík­am­legri og and­legri heilsu. Með þessu er verið að skapa enn frek­ari um­gjörð fyr­ir þenn­an ald­urs­hóp og fjölga tæki­fær­um til hreyf­ing­ar og koma hreyf­ingu bet­ur inn í dag­legt líf þeirra.Aðstaða til heilsu­efl­ing­arAðstaða í sveit­ar­fé­lög­um til íþróttaiðkun­ar hef­ur tekið mikl­um fram­förum og hafa mörg sveit­ar­fé­lög unnið að því að bæta aðstöðu til fjöl­breyttr­ar hreyf­ing­ar, inn­an dyra sem utan. Inniaðstaða í íþrótta­hús­um, útiæf­inga­tæki, upp­hitaðir göngu­stíg­ar og bekk­ir til að hvílast á með reglu­legu milli­bili á vin­sæl­um göngu­leiðum eru nokk­ur dæmi sem vert er að nefna. Fé­lags­starf er líka í boði með fjöl­breyttri afþrey­ingu og virkni á veg­um sveit­ar­fé­laga, fé­laga eldri borg­ara, íþrótta­fé­laga og annarra fé­laga­sam­taka. Íþrótta­fé­lög um land allt bjóða mörg hver upp á skipu­lagðar æf­ing­ar fyr­ir þenn­an ald­urs­hóp en íþrótta­hreyf­ing­in á Íslandi hef­ur allt sem þarf til að vel tak­ist, menntaða þjálf­ara, fag­legt starf og góða aðstöðu. Þörf­in fyr­ir inniaðstöðu fer sí­fellt vax­andi með aukn­um fjölda þeirra sem vilja vera á hreyf­ingu að vetri til og því er mik­il­vægt að efla enn frek­ar mögu­leika á fjöl­breyttri inniaðstöðu fyr­ir alla ald­urs­hópa.Hver er ávinn­ing­ur­inn?Sam­kvæmt skil­grein­ingu Alþjóðaheil­brigðismála­stofn­un­ar­inn­ar er heilsa lík­am­leg, and­leg og fé­lags­leg vellíðan en ekki ein­ung­is það að vera laus við sjúk­dóma og ör­orku. Heilsu­efl­ing er því mik­il­væg­ur liður í mark­vissu lýðheils­u­starfi. Reglu­leg hreyf­ing hef­ur fjölþætt gildi fyr­ir heilsu og líðan á öll­um ævi­skeiðum. Rann­sókn­ir staðfesta mik­il­vægi hreyf­ing­ar fyr­ir aldraða, m.a. betri heila­heilsu, minni lik­ur á föll­um og al­mennt aukna getu til að sinna dag­leg­um at­höfn­um. Hreyf­ing stuðlar auk þess að betri and­legri og lík­am­legri heilsu og ýtir und­ir fé­lags­leg sam­skipti og virkni al­mennt. Þörf­in fyr­ir styrk­ingu vöðvamassa vex með ár­un­um sem mót­vægi við því tapi sem á sér stað frá miðjum aldri, það er því til mik­ils að vinna. Marg­ir átta sig ekki á hvað vöðva­styrk­ur er af­ger­andi þátt­ur í að kom­ast leiðar sinn­ar og vera virk. Því má aldrei hætta í að styðja við þá styrkt­arþjálf­un sem efl­ir vöðvamass­ann.Mik­il­vægi heilsu­efl­ing­ar til auk­inna lífs­gæða verður seint of­metið en um­fram allt eyk­ur reglu­leg hreyf­ing lík­urn­ar á því að fólk lifi leng­ur, við betri heilsu og betri lífs­gæði en ella.

Sú heilsu­efl­ing sem nú er stefnt að með þeim styrkj­um og fræðslu sem verður í boði er ætlað að snúa vörn í sókn á öll­um sviðum lýðheilsu. Því er mik­il­vægt að all­ir hjálp­ist að við það að virkja göngu­hópa og hreyfi­hópa á sem fjöl­breytt­ast­an hátt og hvetja hvert annað í góðum lífs­stíl.

 

Ingibjörg Ólöf Isaksen og Þórunn Sveinbjörnsdóttir

   

Previous
Previous

338. - Stjórnarfundur LEB 2. mars 2021

Next
Next

Auglýst er eftir framboðum vegna stjórnarkjörs á Landsfundi LEB 2021