Landsfundur LEB 2022

 Fundurinn verður haldinn í Hraunseli, félagsheimili Félags eldri borgara í Hafnarfirði að Flatahrauni 3, 220 Hafnarfirði og hefst kl. 10.00. Gert er ráð fyrir að fundarstörfum ljúki kl. 17.00. Landsfundurinn er eingöngu opinn fulltrúum aðildarfélaga LEB sem hafa fengið til þess umboð (kjörbréf).Að fundi loknum verður sameiginlegur kvöldverður og geta fundargestir boðið með sér gesti. Þessi kvöldverður er valkvæður fyrir landsfundarfulltrúa.Dagskrá landsfundar, samkv. lögum LEB:6. gr. Dagskrá landsfundar6.1.1. Kosning tveggja fundarstjóra og tveggja fundarritara.2. Niðurstaða kjörbréfanefndar.3. Skýrsla stjórnar um starfsemi sambandsins í liðnu starfsári.4. Ársreikningur lagður fram til umræðna og afgreiðslu.5. Starfs- og fjárhagsáætlun næsta starfsárs kynnt.6. Ákvörðun árgjalds.7. Tillögur um starfshópa fundarins.8. Málefnastarf.9. Samantekt starfshópa, afgreiðsla ályktana og tillagna.10. Lagabreytingar.11. Kosningar: a) kosning formanns til tveggja ára.  (Á ekki við núna)b) kosning tveggja manna í stjórn  til tveggja ára.c) kosning þriggja varamanna til eins árs. Verði sjálfkjörið skal röð varamanna koma skýrt fram.d) kosning tveggja skoðunarmanna ársreikninga LEB og tveggja til vara, allra til eins árs.e) kosning nefnda sem starfa milli landsfunda.12. Önnur mál.6.2. Stjórn er heimilt að fjölga dagskrárliðum svo sem um afmörkuð hagsmunamál aldraðra og ávörp gesta.Við hvetjum aðildarfélög til að að fara að velja fulltrúa sína á landsfund. Samkv. lögum LEB á hvert félag rétt á 1 fulltrúa fyrir allt 150 fyrstu félagsmenn sína, séu félagsmenn 151 – 300 fær félagið 2 fulltrúa og síðan 1 fulltrúa fyrir hverja 300 félagsmenn til viðbótar eða brot úr þeirri tölu. Velja skal jafn marga varamenn. Fulltrúafjöldi einstakra félaga fer eftir uppgefnum félagafjölda í Ársskýrslu 2020. Félagsstjórn aðildarfélags gefur út kjörbréf fyrir landsfundarfulltrúa og skal senda það til stjórnar LEB a.m.k. 2 vikum fyrir landsfund, undirritað af formanni og ritara aðildarfélags. TÍMALÍNA FYRIR LANDSFUND LEB 2022 
  • 21. mars (sex vikum fyrir landsfund)

Stjórn boðar landsfund, með dagskrá, fundarstað og tillögum stjórnar.Óskað eftir tillögum aðildarfélaga. 

  • 2. apríl (fjórum vikum fyrir landsfund)

Tillögur aðildarfélaga hafi borist. Skipun kjörbréfanefndar. 

  • 18 apríl (tveimur vikum fyrir landsfund)

Tillaga uppstillingarnefndar tilkynnt.Kjörbréf aðildarfélaga.5.2. Hvert aðildarfélag kýs fulltrúa á landsfund þannig að fyrir 1 – 150 félagsmenn fær félag einn fulltrúa, séu félagsmenn 151 – 300 fær félagið 2 fulltrúa og síðan einn fulltrúa fyrir hverja 300 félagsmenn til viðbótar, eða brot úr þeirri tölu.

  • 25 apríl (viku fyrir landsfund)

Ársreikningar birtir á heimasíðu LEB 

  • 3. maí LANDSFUNDUR LEB 2022
Previous
Previous

Hallarekstur á heimilum láglaunafólks

Next
Next

Mál Gráa hersins beint til Hæstaréttar