Lífsgæðakjarnar framtíðarinnar

 

Borgarstjóri efnir til opins fundar miðvikudaginn 27. september nk. kl. 9.00 - 11.45 í Ráðhúsi Reykjavíkur um lífsgæðakjarna framtíðarinnar og uppbyggingu heimila fyrir eldra fólk (og e.a. annarra kynslóða).

Framsöguerindi verða flutt, en einnig fer fram kynning á nokkrum þeim hugmyndum sem bárust eftir að borgin kallaði eftir hugmyndum og samstarfsaðilum í maí sl.

Að þessu seinni verður fókusinn á aðila sem sendu inn hugmyndir að uppbyggingu á eigin lóðum. Einnig verður efnt til pallborðs til að ræða þróun í þessum málaflokki og framtíðina.

Drífa Sigfúsdóttir varaformaður LEB mun taka þátt í pallborði um efnið. Aðrir þátttakendur í pallborðinu verða sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar, fulltrúi Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni og skrifstofustjóri og leiðtogi öldrunarmála hjá Reykjavíkurborg.

Málþinginu verður streymt. 

Previous
Previous

Kjaramálaráðstefna Félags eldri borgara Ísafirði fimmtudag 28. september

Next
Next

Fundur um kjaramál og önnur hagsmunamál hjá Félagi eldri borgara á Akureyri, 20. september