Mannréttindaskrifstofa Íslands hefur gefið út ritið RÉTTARSTAÐA ELDRA FÓLKS.

Um réttarstöðu eldra fólks.

Mannréttindaskrifstofa Íslands hefur gefið út ritið Réttarstaða eldra fólks. Ritið er aðeinsað finna á rafrænu formi en framkvæmdastjórn skrifstofunnar ákvað árið 2012 að gefa ritskrifstofunnar framvegis út á netinu. Var ákvörðunin fyrst og fremst tekin á grundvelliumhverfisverndarsjónarmiða.Í upphafi ritsins er fjallað um þróun löggjafar í málefnum eldra fólks, bæði innlenda ogalþjóðlega. Þá kemur kafli um réttaröryggi eldra fólks þar sem fjallað er m.a. umstjórnskipulag málefna eldra fólks, mannréttindi eldra fólks og úrræði til að tryggjaréttaröryggi þeirra.Ritinu er svo skipt í kafla eftir einstökum réttindum, svo sem réttinum tilframfærslu- og félagsþjónustu og réttinum til heilbrigðisþjónustu. Inntak réttarins er svoskilgreint út frá þeim innlendu og erlendu réttarheimildum sem við eiga þar sem sérstökáhersla er lögð á að draga fram þær réttarheimildir sem lúta að eldra fólki.Sú umræða hefur lengi farið fram innan Sameinuðu þjóðanna að þörf sé á sérstökummannréttindasamningi sem fjalli um réttindi eldra fólks en það verður oft fyrir mismunun á grundvelli aldurs.Síðasta áratuginn hefur þessi umræða magnast enn frekar og telja nú margirað slíkur samningur muni verða næsti stóri samningur á vegum Sameinuðu þjóðanna ummannréttindi. Markmiðið með gerð slíks samnings er að koma heildarmynd á brotakenndákvæði um réttindi eldra fólks og leggja einkum áherslu á þau réttindi sem þeim erusérstaklega mikilvæg. Slíkur samningur er einnig mikilvægur til að tryggja að eldra fólk fáiréttindum sínum framfylgt. Í ljósi þess að þjóðir heimsins verða sífellt eldri munu fleirieinstaklingar eiga á hættu í framtíðinni að verða fyrir mismunun á grundvelli aldurs. Þvískiptir máli að stjórnvöld aðildarríkja bregðist sem fyrst við og standi aðmannréttindasamningi er taki til réttinda eldra fólks.Á meðal þess sem bent hefur verið á að slíkur samningur myndi hafa í för með sér er aðdraga úr mismunun á grundvelli aldurs, vekja athygli á þeirri mismunun sem eldra fólkverður oft fyrir og leggja þær skyldur á aðildarríki að setja sér lög um bann við mismunun.Slíkur samningur myndi einnig stuðla að því að aldraðir einstaklingar lifðu lífi sínu afvirðingu (e. with dignity) og setja fram lagalega bindandi lágmarksviðmið um vernd eldrafólks samkvæmt alþjóðalögum.Þá myndi sérstakur samningur um réttindi eldra fólks setjafram ákveðinn ramma til leiðbeiningar þegar kemur að stefnumótun aðildarríkja innanmálaflokksins og stuðla að betri þróun á þjónustu við eldra fólk og þjálfun viðeigandifagaðila og heilbrigðisstarfsfólks.Ýmsir aðilar telja Covid-19 og það ástand sem skapast hefur í heiminum vegna veirunnarendurspegla enn frekar þörfina fyrir sérstakan samning um réttindi eldra fólks.Ástandið hafi sýnt fram á hve illa geti farið séu mannréttindi einstaklinga ekki tryggð með fullnægjandi hætti.Þannig hafi ástandið vegna Covid-19 komið sérstaklega illa niður á öldruðumeinstaklingum þar sem ekki hefur verið komið nægilega til móts við þarfir þeirra og þeimmismunað. Alþjóðlegur samningur um réttindi eldra fólks myndi stuðla að betristefnumótunum, setja sjónarmið um virðingu fyrir öllum einstaklingum í forgang og tryggja að eldra fólk geti lifað lífi sínu með sem bestum hætti.Ritið um réttarstöðu eldra fólks er að finna HÉR.

 Mannréttindaskrifstofa Íslands hefur gefið út ritið Réttarstaða eldra fólks.

Réttarstaða eldra fólks

 

Previous
Previous

Fundur kjaranefndar LEB 16. febrúar 2023

Next
Next

„Greiðslufyrirkomulag hjúkrunarheimila er úrelt“