Milljónafólkið - nokkur orð um eftirlaun
Viðar Eggertsson skrifar um eftirlaun eldri borgara.
Kastljós RÚV átti sterkan leik að halda á dögunum Borgarafund um málefni eldri borgara, þessa stóra og breiða aldurshóps sem kominn er á þriðja æviskeiðið. Metnaðarfull framkvæmd og þakkarverð.
Mér var boðið til þessa áhugaverða Borgarafundar. Umræðunni á fundinum var skipt upp í þrjú meginþemu og skipt um fólk í panel eftir þemum.
Ég fékk að vera í tveim fyrstu hlutunum sem fjölluðu annars vegar um Hver er staðan nú?og hins vegar Hvað svo…? Þar leitaðist ég við að vekja athygli á þeim kjörum sem fólki á þessu breiða aldursskeiði er búið, þegar kemur að eftirlaunum. Þó það virtist ekki vera vinsælt að koma inn á þau málefni í þessum tveim hlutum, því það efni var aðal umræðuefnið í þriðja og síðasta hluta þessa Borgarafundar.
Með mér í öðrum hluta þessara tveggja panela var stjórnarþingmaður sem virtist lítið þekkja til sögu lífeyrissjóða annars vegar og almannatrygginga hins vegar. Hann hélt fram þeim síðari tíma málatilbúnaði að lífeyrissjóðirnir hefðu verið hugsaðir sem fyrsta stoð í eftirlaunakerfinu, en almannatryggingar önnur stoð. Þarna er málum rækilega snúið á hvolf. Það þekkja allir sem hafa kynnt sér söguna af upphafi lífeyrissjóðanna að þessu var þveröfugt farið. Ég mótmælti að sjálfsögðu harðlega þessari kostulegu söguskýringu hans.
Kannski er þingmanninum vorkunn, því hann er í flokki undir forystu manns sem fer um þessar mundir með ráðuneyti fjármála í ríkisstjórn. Sá formaður og um leið fjármálaráðherra hefur verið óþreytandi að halda því fram bæði í riti og ræðu – þar á meðal úr ræðupúlti Alþingis - að eftirlaun eldri borgara frá almannatryggingum væru 300 þúsund krónur á mánuði. Um 50.000 landsmenn vita það á eigin skinni og buddu að það er ekki rétt. Eftirlaun frá almannatryggingum eru 248.105 kr. fyrir skatt og skerðingar. Reyndar hefur ráðherrann oftast kallað þessi eftirlaun til almennra þegna landsins hinu háðulega nafni: „Bætur.”
Eftirlaun almennings koma úr sama ríkissjóði og eftirlaun þingmanna og ráðherra, þó hefur hvorki hann né aðrir kallað eftirlaun þingmanna og ráðherra: „Bætur,” - af einhverjum ástæðum.
Þess er vert að geta að um 20% eftirlaunafólks sem býr eitt og er ógift gefst tækifæri á sérstakri heimilisuppbót - jú rétt, það eru bætur – að hámarki 62.695 kr. fyrir skatt og skerðingar. En bara að því tilskyldu að þessi hópur eftirlaunafólks hafi ekki flúið land til að skrimta skár á eftirlaunum sínum þar sem verðlag er skaplegra en hér í alsældarríkinu. Ef það gerir það þá er það umsvifalaust svipt þessari uppbót.
Hvernig sem veður skipast í launahækkunum á almennum vinnumarkaði og hvaða Lífskjarasamningar eru undirritaðir til lífskjarabóta almúgans í beinum útsendingum helstu miðla landsins, þá situr einn hópur samfélagsins eftir í skammarkróknum: Eldri borgarar þessarar þjóðar. Þeim er gert að bíða til áramóta hverju sinni eftir sinni launahækkun. Sú næsta er boðuð um áramót, hvorki meira né minna en 3,5% hækkun frá síðustu hækkun fyrir ári.
Því miður var ég ekki í þeim hluta Borgarafundarins í Kastljósi sem fjallaði sérstaklega um launakjör og afkomu eldri borgara. Ég segi því miður, því þá hefði ekki staðið á mér að mótmæla orðum stjórnarþingmannsins fyrrnefnda sem þarna var með í umræðunni og fannst sæma að taka sem dæmi um kjör eldri borgara að fólk hefði milljón [sic!] í greiðslur úr lífeyrissjóði á mánuði og því væri rétt að skerða eftirlaun eldri borgara frá almannatryggingum!
Kannski sýnir þetta sápukúluna og fyrringuna sem fólk getur verið haldið sem vílar og dílar með kjör okkar á Alþingi. Því ekki þekki ég neinn sem hefur rétt á slíkum greiðslum - nema þá kannski helst alþingismenn sjálfa?
Hitt þekki ég aftur á móti vel - af miklum fjölda fólks - sem hefur í kringum 250.000 kr. í greiðslu frá lífeyrissjóði og þegar ríkið hefur beitt skatta- og skerðingahníf sínum á greiðslurnar frá almannatryggingum, 248.105 kr., þá situr fólk eftir með alls um 300.000 kr. til að lifa á. Það er undir framfærsluviðmiði hins opinbera. Í þeirri gruggugu súpu situr lang stærsti hluti eldri borgara þessa lands.
Já, og svo er fjöldi fólks sem ber minna úr býtum...
Höfundur er leikstjóri og verðandi eldri borgari.