Ný stjórn kosin á Landsfundi LEB 2020

Tillaga uppstillingarnefndar um stjórnarmenn var samþykkt einum rómi á Landsfundi LEB 2020.Í aðalstjórn til tveggja ára voru kosnar þær Valgerður Sigurðardóttir Hafnarfirði og Ingibjörg H. Sverrisdóttir Reykjavík.Varastjórn er kosin til eins árs í senn. Í varastjórn voru kosin þau Ingólfur Hrólfsson Mosfellsbæ, Þorbjörn Guðmundsson Reykjavík og Guðfinna Ólafsdóttir Selfossi.Stjórn LEB er því nú skipuð:Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaðurAðrir í aðalstjórn:Haukur Halldórsson, AkureyriDagbjört Höskuldsdóttir, StykkishólmiValgerður Sigurðardóttir, HafnarfirðiIngibjörg H. Sverrisdóttir, Reykjavík Varastjórn:Ingólfur Hrólfsson, MosfellsbæÞorbjörn Guðmundsson, ReykjavíkGuðfinna Ólafsdóttir, SelfossiStjórn mun skipta með sér verkum á fyrsta fundi sínum.Úr stjórn viku þau Ellert B. Schram Reykjavík, Ólafur Örn Ingólfsson Reykjavík og Drífa Sigfúsdóttir Reykjanesbæ.Er þeim þökkuð mikil og góð störf í stjórn LEB – Landssambands eldri borgara.

Previous
Previous

Ályktun um kjaramál samþykkt á Landsfundi LEB 2020

Next
Next

Ályktun Landsfundar LEB 2020 um velferðar- og heilbrigðismál