Nýr starfshópur um lífskjör og aðbúnað aldraðra

Starfshópurinn er skipaður af félagsmálaráðherra.Fyrsti fundur starfshópsins er boðaður föstudaginn 13. september kl. 14.00 í félagsmálaráðuneytinu.Verkefni hópsins er að fjalla um:

  • Hvernig fyrirkomulagi öldrunarþjónustu verði best háttað.
  • Lífskjör aldraðra, þar á meðal hvernig eldri borgarar geti aukið ráðstöfunartekjur sínar með aukinni atvinnuþátttöku og frestun töku lífeyris.
  • Lífsskilyrði aldraðra, aldursvæn samfélög og hvernig draga megi úr líkum á félagslegri einangrun aldraðra.
  • Hvernig nýta megi nútímatækni betur í þágu aldraðra.
  • Hvort ástæða sé til að breyta því fyrirkomulagi sem nú er í gildi varðandi greiðsluþátttöku íbúa á hjúkrunarheimilum.
  • Stytta biðtíma eftir hjúkrunarrými og bæta þjónustu við íbúa.

Starfshópinn skipa:Ingibjörg Ólöf Ísaksen, án tilnefningar, formaðurArnar Þór Sævarsson, án tilnefningarGuðlaug Einarsdóttir, tiln. af heilbrigðisráðuneytinuÞórunn Sveinbjörnsdóttir, tiln. af Landssambandi eldri borgaraHaukur Halldórsson, tiln. af Landssambandi eldri borgaraÞorbjörn Guðmundsson, tiln. af Landssambandi eldri borgaraBergþóra Benediktsdóttir, tiln. af forsætisráðuneytinuSteingrímur Ari Arason, tiln. af fjármálaráðuneytinuStarfsmenn starfshópsins eru Birna Sigurðardóttir og Ágúst Þór Sigurðsson sérfræðingar í félagsmálaráðuneytinu. 

Previous
Previous

321 - stjórnarfundur LEB 15. ágúst 2019

Next
Next

Umönnun og mönnun í öldrunarþjónustu