Ókeypis tölvufræðsla fyrir fullorðna.
Tæknilæsi fyrir fullorðna er Facebooksíða sem er hugsuð sem kennslusíða fyrir eldra fólk sem vill læra á spjaldtölvur og snjallsíma í þeim tilgangi að verða virkari þátttakendur í hinum rafræna heimi. Aðgangur að kennsluefninu er algjörlega ókeypis. Að síðunni Tæknilæsi fyrir fullorðna stendur ungt hugsjónafólk, gefum þeim orðið:„Í ljósi þess að nú gengur yfir landið okkar, já yfir alla jörðina hreinlega, heimsfaraldur, vildum við í tæknilæsisteyminu vekja athygli á verkefninu okkar sem er að efla tæknilæsi fullorðinna. Upphaflega planið var að vera með kennslu í raunheimum og svo myndum við skoða það að vera með fjarkennslu. En nú er bara ekki hægt að bíða eftir þeim lúxus og verðum við því bara að hendast í það að útbúa fjarkennslu sem fyrst.
Nánar um unga hugsjónafólkið sem stendur að Tæknilæsi fyrir fullorðna:Úlfur Atlason er verkefnastjóri og kennari í teyminu.Hann er 19 ára og hefur unnið fyrir Skema í rúm 6 ár. Hann er fæddur og uppalinn í Hafnarfirði og telst því Gaflari.Úlfur er vísindamiðaður og hefur verið það frá blautu barnsbeini. Úlfur hóf skólagöngu í Lækjarskóla í Hafnarfirði en undir lok níunda skólaársins bauðst honum að fara í Flensborgarskólann og hefja nám þar. Í Flensborg kláraði hann náttúrufræðibraut en lagði mikla áherslu á stærð- og eðlisfræði. Eftir stúdentsprófið lá leiðin til Háskóla Íslands þar sem hann hóf nám í Eðlisfræði. Þegar fyrsta árið í eðlisfræði lauk var kominn tími á breytingar. Úlfur tók sér leyfi frá námi og hóf störf sem verkefnastjóri Skema í Háskólanum í Reykjavík. Hann áætlar að snúa sér aftur að námi haustið 2021 en markmiðið hans er að sérhæfa sig í skammtafræði.Úlfur tekur virkan þátt í góðgerðarstarfsemi og er sitjandi ritari í Lionsklúbbi Hafnarfjarðar, sem veitir reglulega styrki og gjafir til ýmissa stofnanna, einstaklinga og félaga. Þegar Úlfur er ekki að vinna, læra eða sinna góðgerðarmálum notar hann gjarnan tímann til að sinna áhugamálunum sínum. Áhugamál hans eru þó nokkur en af þeim má nefna tölvuleiki, eðlisfræði, saumaskap og íslenska tungu.Gunnhildur Fríða Hallgrímsdóttir, en hana ættu eflaust einhverjir að þekkja sem loftslagsaðgerðarsinna sem sló í gegn í borgarspjalli RÚV fyrr í vetur þar sem loftslagsmálin voru einmitt rædd.Gunnhildur Fríða Hallgrímsdóttir er 17 ára nýstúdent úr Hveragerði. Hún byrjaði að kenna 15 ára hjá Kóder, þar sem hún var m.a. einn skipuleggjenda fyrstu forritunarbúða landsins, en hefur verið að kenna hjá Skema núna í ár. Gunnhildur kláraði stúdentinn í desember frá Tækniskólanum, á brautinni K2, þar sem hún lagði áherslu á vísindi, tækni og frumkvöðlafræði. Gunnhildur og hennar vinir hafa einnig stofnað fyrirtækið Ró-Box, sem framleiðir vélmenna-kit fyrir krakka til að læra á vélmenni. Einnig var hún forseti Sambands íslenskra framhaldsskólanema, og er ein þeirra í skipulagsteymi loftslagsverkfallana. Í haust mun Gunnhildur svo byrja í Harvard háskóla í umhverfisverkfræði og mun þar vafalaust láta til sín taka.Francesco Barbaccia er fæddur og uppalinn á Ítalíu og kom til landsins árið 2012 fylgjandi eftir íslenskri ástmey sinni.Frans hefur frá barnsaldri haft áhuga á tölvutækjum sem byrjaði snemma þegar hann fékk sína fyrstu tölvu sex ára gamall (sem hann á enn til í dag). Síðan blandaði hann þessu saman áhugamáli við sína náttúrulegu málkennd og hóf nám í fjölmiðla-og auglýsingatæknifræði í Háskóla á Ítalíu, sem hann kláraði með lokaverkefni um rafræn markaðssamskipti í samstarfi við íslenskt fyrirtæki. Í dag er hann að klára meistaranám í markaðsfræði við Háskóla Reykjavíkur.
Rannveig Ernudóttir er virkniþjálfi hjá Velferðarsviði Reykjavíkurborgar, sem hefur í rúm fjögur ár séð um og skipulagt félagsstarf fullorðinna í Dalbrautarþorpinu í Laugardalnum. Þar áður sá hún um félagsstarfið hjá Hrafnistu í Hafnarfirði.Rannveig er guðfræðingur sem og tómstunda- og félagsmálafræðingur og er einnig yogakennari, en til hliðar við félagsstarfið á hún það til að stökkva inn í borgarstjórn og leysa þar af ef þörf er á.