Þátttakendur óskast á Framtíðarþing um farsæla öldrun

Vopnafjörður, Seyðisfjörður, Fljótsdalshreppur, Fljótsdalshérað, Djúpivogur.is, Fjarðabyggð, Borgarfjörður eystri, LEB - Landssamband eldri borgara, Öldrunarráð Íslands og Heilbrigðisráðuneytið standa að framtíðarþingi um farsæla öldrun í Valaskjálf, Egilsstöðum, fimmtudaginn 10.október kl. 15 - 18.

Markmið þingsins:

* Skapa umræðu meðal áhugasamra um öldrunarmál, væntingar og viðhorf til efri áranna.

* Vekja jákvæða athygli á eldri borgurum, stöðu þeirra og hvernig þeir lita á mál sín til frambúðar.

Óskað er eftir þátttakendum úr eftirfarandi hópum:

* 75 ára og eldri

* 55-75 ára

* 55 ára og yngri

* Starfsfólk sem tengist öldrunarmálum

Skráning:

Skráning sendist á netfangið oldrunarrad@oldrunarrad.is

eða í síma 414 9500 eigi síðar en kl. 12.00, þann 7. október n.k.

Taka þarf fram nafn, kennitölu og síma.

Þátttaka er öllum heimil og án endurgjalds.

Boðið verður upp á veitingar.

Previous
Previous

10. október: Málþingið Er gott að eldast á Norðurlandi / Akureyri?

Next
Next

Fjármál við starfslok og lífsseigar mýtur leiðréttar