10. október: Málþingið Er gott að eldast á Norðurlandi / Akureyri?
Málþingið er haldið 10. október kl. 13.00 - 16.00 í hátíðarsal Háskólans á Akureyri, Sólborg og er öllum opið.
Kynning á þeirri þjónustu sem eldri íbúar eiga kost á Norðurlandi/Akureyri.
Markmið málþingsins er að kynna þá þjónustu sem eldri íbúar eiga kost á Norðurlandi/Akureyri og opna umræðu um leiðir til að bæta og samhæfa þennan sívaxandi þátt í velferðarþjónustunni.
Veggspjöld og kynningarefni verða til sýnis fyrir framan hátíðarsalinn
Að málþinginu standa Heilbrigðisstofnun Norðurlands, Sjúkrahúsið á Akureyri, Akureyrarbær, Öldrunarheimili Akureyrar og Háskólinn á Akureyri.
Sjá Dagskrá hér