Upptaka af fundi um ójöfnuð á Stór-Reykjavíkursvæðinu

Föstudaginn 5. janúar var haldinn opinn fundur um ójöfnuð á Stór-Reykjavíkursvæðinu þar sem farið var yfir niðurstöður tímamótarannsóknar um félagslegt landslag sem unnin var í samstarfi við Reykjavíkurborg.Á fundinum voru tækifæri og áskoranir á Stór-Reykjavíkursvæðinu rædd með áherslu á tekjur og eignir. Einnig horft til mikilvægra lýðfræðilegra breytinga sem hafa átt sér stað á undanförnum árum og áratugum og geta haft áhrif á ójöfnuð, þ.e. öldrun samfélagsins, fjölgun innflytjenda, breytingu á fjölskylduformum og hækkandi menntunarstig.Fundurinn fór fram í Tjarnarsal Ráðhússins.Dagskrá
  • 9:00–9:15  Ávarp borgarstjóra, Dagur B. Eggertsson
  • 9:15–9:45  Félagslegt landslag í Reykjavík – niðurstöður rannsóknar, Kolbeinn H. Stefánsson, dósent á Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands
  • 9:45–9:55  Lagskipting og búseta, Guðmundur Ævar Oddsson, prófessor á Félagsvísindasviði Háskólans á Akureyri
  • 9:55–10:05 Ójöfnuður í heilsu í Reykjavík, Sigrún Ólafsdóttir, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands
  • 10:05–​​​​​​​10:15  Líðan Íslendinga eftir aldri, kyni og fjárhagsstöðu, Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðstjóri lýðheilsu hjá Embætti landlæknis
  • 10:15  Pallborð og samantekt

– Dagur B.Eggertsson – borgarstjóri– Kolbeinn H. Stefánsson –  dósent á Félagsvísindasviði HÍ-Sigþrúður Erla Arnardóttir – framkvæmdastjóri Vesturmiðstöðvar Reykjavíkur-Óskar Dýrmundur Ólafsson – framkvæmdastjóri Suðurmiðstöðvar Reykjavíkur-Gunnar Axel Axelsson – bæjarstjóri Vogum-Fjóla Steindóra Kristinsdóttir – bæjarstjóri ÁrborgÓjöfnuður á Stór-Reykjavíkursvæðinu – hver er staðan? | Reykjavik 

  https://www.youtube.com/live/Zgvl49zwVrM?si=dAfXgXziEuP7zbep 

Previous
Previous

U3A Reykjavík Fréttabréf í janúar 2024

Next
Next

Ofbeldi gegn eldra fólki