Verkefnið Bjartur lífsstíll - heilsuefling eldra fólks framlengt um eitt ár
Föstudaginn 2. desember sl. veitti Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, Íþrótta-og Ólympíusambandi Íslands (ÍSÍ) og Landssambandi eldri borgara (LEB) áframhaldandi styrk til heilsueflingar eldra fólks. Lárus Blöndal, forseti ÍSÍ, og Helgi Pétursson, formaður LEB, skrifuðu undir samning um framhald verkefnisins.Bjartur lífsstíll, samstarfsverkefni LEB og ÍSÍ um heilsueflingu eldra fólks, miðar að því að aðstoða áhugasöm sveitarfélög um land allt við að innleiða með markvissum hætti heilsueflingu, sem felur í sér skipulagða þjálfun, aukið heilsulæsi og aðra þætti sem skipt geta sköpum fyrir heilsu og líðan fólks.Ásgerður Guðmundsdóttir og Margrét Regína Grétarsdóttir, verkefnastjórar ofangreindra samtaka, sem settu Bjartan lífsstíl á laggirnar í janúarbyrjun þessa árs, hafa nú þegar hitt um 30 sveitarfélög þar sem boðið er upp á ráðgjöf og fræðslu. Þær hafa verið ráðnar áfram til að sinna þessu mikilvæga verkefni.Áhersla verður lögð á að stuðla að meiri virkni hjá eldra fólki og að öllu eldra fólki standi til boða tækifæri til að stunda hreyfingu.Hægt er að lesa nánar um verkefnið hér: www.bjartlif.isÁ myndinni hér fyrir neðan eru, frá hægri: Helgi Pétursson formaður LEB, Ásgerður Guðmundsdóttir, verkefnastjóri LEB, Guðmundur Ingi Guðbrandsson ráðherra, Margrét Regína Grétarsdóttir verkefnastjóri ÍSÍ og Lárus L. Blöndal forseti ÍSÍ.