Landssamband eldri borgara tekur heilshugar undir kröfur verkalýðssamtaka um hækkun lágmarkslauna. Landssambandið krefst þess að lífeyrir almannatrygginga taki sömu hækkunum og lágmarkslaun sem samið verður um í næstu kjarasamningum á almennum markaði og/eða hjá opinberum starfsmönnum. Við teljum að 300.000 kr lágmarkslaun á þremur árum sé ekki ofviða íslensku atvinnulífi og ekki til þess fallið að ógna þeim stöðugleika sem við viljum varðveita. Það er ekki sanngjarnt að hinir lægst launuðu taki á sig ábyrgð á stöðugleika í verðlagi, en hærra launaðir aðilar ekki. Landssambandið hvetur aðila vinnumarkaðarins og stjórnvöld til að leita allra leiða til að koma í veg fyrir verkföll, og semja sem fyrst í þeim viðræðum sem fram undan eru í kjaramálum.
Nýlegar færslur
- Sumarlokun hjá LEB 12.07.24.
- Hjörtur Gíslason: Er þetta í lagi? 11.07.24.
- Fundur með Félags- og vinnumarkaðsráðherra 03.07.24.
- Viðar Eggertsson: Skerðingargildra eldra fólks 28.06.24.
- 383. stjórnarfundur LEB 24. maí 2024 27.06.24.
- Kvikmyndin Snerting – sérsýning 10.06.24.
- 382. stjórnarfundur LEB 22. apríl 2024 05.06.24.