Lífsblómið − Fullveldi Íslands í 100 ár
Við viljum vekja athygli á sýningunni Lífsblómið − Fullveldi Íslands í 100 ár sem var opnuð í Listasafni Íslands þann 17. júlí síðastliðinn.
Sýningin Lífsblómið fjallar um fullveldi Íslands, forsendur þess og meginþætti í sjálfstæðisbaráttu og sjálfsmynd Íslendinga frá árinu 1918 og til dagsins í dag. Að henni standa Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, Þjóðskjalasafn Íslands og Listasafn Íslands. Sýningin veitir sýn yfir fullveldistímann á aðgengilegan hátt með fjölda sýningarhluta.
Á sýningunni eru sýnd í fyrsta skipti á Íslandi tvö af helstu miðaldahandritum Íslendinga, sem varðveitt eru í Kaupmannahöfn, Ormsbók með Fyrstu málfræðiritgerðinni frá miðri 12. öld og Reykjabók Njálu frá um 1300. Á sýningunni eru einnig merk handrit frá Árnastofnun í Reykjavík eins og Möðruvallabók og Staðarhólsbók Grágásar. Úr fórum Þjóðskjalasafns má sjá fundargerðabók þjóðfundarins 1851, sambandslagasamninginn 1918 og manntalið 1703 sem er á skrá UNESCO yfir menningarverðmæti á heimsvísu eins og handritasafn Árna Magnússonar. Myndlistin ljær umræðunni um ýmis átakamál á fullveldistímanum rödd sína og eru verk á sýningunni eftir marga af fremstu listamönnum þjóðarinnar, m.a. Ragnar Kjartansson, Ólaf Elíasson, Birgi Andrésson, Ólöfu Nordal ásamt fjölda annarra.
Sýningin er opin alla daga nema mánudaga, frá kl. 10 − 17. Aðgangseyrir fyrir eldri borgara er 750 krónur. Hægt er að bóka leiðsögn hjá sérfræðingi á virkum dögum frá kl. 14 − 17 eða eftir samkomulagi. Nauðsynlegt er að bóka tíma fyrir fram. Fjörutíu mínútna leiðsögn kostar 15 þúsund krónur, auk aðgangseyris hvers og eins.
Hafið samband við Svanhildi Maríu Gunnarsdóttur, svanhildur.maria.gunnarsdottir@arnastofnun.is og í síma 822 0121 eða Ragnheiði Vignisdóttur, ragnheidur@listasafn.is og í síma 515 9614 eða 621 9614 til þess að bóka tíma. Svanhildur María og Ragnheiður veita allar frekari upplýsingar.