LEB fær styrk til að fyrirbyggja einmanaleika og eingrun aldraðra
LEB fær þriggja milljóna króna styrk frá heilbrigðisráðherra til gerðar fræðsluefnis í forvarnarskyni gegn einmanaleika og félagslegri einangrun. Vitað er að félagsleg einangrun er einn af áhættuþáttum heilabilunar. Þess vegna skiptir miklu máli m.a. að eldra fólk haldi virkni og félagslegum tengslum og fái til þess markvissan stuðning ef þess er þörf.
Fræðsluverkefni Alzheimersamtakanna fjalla annars vegar um svokölluð styðjandi samfélög og hins vegar jafningjafræðslu á hjúkrunarheimilum og eru að danskri fyrirmynd. Til að stuðla að styðjandi samfélögum fyrir fólk með heilabilun munu Alzheimersamtökin standa fyrir gerð fræðsluefnis fyrir sveitarfélög og ýmsa þá sem veita almenningi þjónustu, s.s. afgreiðslufólk í verslunum og bönkum, öryggisverði, lögreglu, fólk sem sinnir almenningssamgöngum o.fl. þar sem fjallað er um heilabilun og ýmsar birtingarmyndir heilabilunarsjúkdóma og farsæl viðbrögð þjónustuaðila í samskiptum við fólk með einkenni heilabilunar. Fræðsluefnið verður gert aðgengilegt öllum sem á þurfa að halda, m.a. í gegnum vefgáttina www.heilsuvera.is. Öldrunarheimili Akureyrar og Akureyrarbær hafa í samvinnu við Alzheimersamtökin unnið að því um skeið að gera Akureyri að styðjandi samfélagi fyrir fólk með heilabilun og er stefnt að því að bæjarfélagið kynni þá stefnu og taki sé nafnbótina styðjandi samfélag í janúar næstkomnandi.
Hitt verkefni Alzhheimersamtakanna sem heilbrigðisráðherra styrkir; jafningjafræðsla á hjúkrunarheimilum snýst um að koma á fót teymi sem heimsækir hjúkrunarheimili, veitir fræðslu og styrkir getu starfsfólks til að veita fólki með heilabilun umönnun. Mikilvægur liður í verkefninu og megináhersla í störfum teymisins verður að aðstoða starfsfólk á hverjum stað við að koma á fót jafningjafræðslu um umönnun fólks með heilabilun. Gert er ráð fyrir að jafningjafræðsla hefjist á öllum hjúkrunarheimilum landsins á árunum 2020–2021 undir stjórn Alzheimersamtakanna.
Landssamband eldri borgara fær þriggja milljóna króna styrk til gerðar fræðsluefnis í forvarnarskyni gegn einmanaleika og félagslegri einangrun. Vitað er að félagsleg einangrun er einn af áhættuþáttum heilabilunar. Meðal annars þess vegna skiptir miklu máli að eldra fólk haldi virkni og félagslegum tengslum og fái til þess markvissan stuðning ef þess er þörf. Fræðsluefnið mun snúa að þessu og beinast jafnt að einstaklingum og stjórnsýslunni. Gert er ráð fyrir að verkefninu ljúki fyrir lok árs 2020 og að fræðsluefnið verði meðal annars aðgengilegt á vefgáttinni www.heilsuvera.is.Styðjandi samfélög
Jafningjafræðsla á hjúkrunarheimilum
Fræðsluefni til forvarna gegn einmanaleika eldra fólks