Sunnudagur 1. des: Tónleikar 300 manna kórs eldri borgara í Hörpu kl. 16.00

Eldhugar eru 300 manna blandaður kór úr átta kórum eldri borgara af höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum, Selfossi og Akranesi sem halda mun tónleika í Eldborg í Hörpu 1. desember nk. kl. 16.00Hugmyndina að tónleikunum á Garðar Cortes sem einnig stjórnar kórnum.Píanóleikari: Sigurður Helgi Oddsson.Landssamband blandaðra kóra skipuleggur tónleikana.Kórinn mun flytja glæsileg íslensk kórverk og elskuð lög sem hafa fylgt íslenskri kóramenningu um áratuga skeið. Einnig verða nokkur jólalög á efnisskránni og fjöldasöngur með öllum áheyrendum.Þetta eru fyrstu tónleikarnir sinnar tegundar og óhætt að mæla með því að taka þátt í þessum viðburði.Miðasala HÉR

Previous
Previous

Eru eldri borgarar skildir eftir?

Next
Next

Stjórn LEB ályktar um almennt frítekjumark